TJALDSVÆÐI


Hér í Svínafelli bjóðum við upp á tvenns konar tjaldsvæði.

Annars vegar eru ofan við sundlaugina átta flatir sem hver rúmar 6-8 lítil tjöld og hentar vel fyrir minni hópa og fjölskyldur. Á því svæði er salernisaðstaða og vaskar með rennandi vatni auk þess sem örstutt er að þjónustuhúsinu (100m).

Hinsvegar er stærri flöt við hlið þjónustuhússins sem hentar vel fyrir stærri hópa.

Allir gestir hafa frjálsan aðgang að þjónustuhúsi við hlið smáhýsanna. Þar er lágmarks aðstaða til matargerðar, þ.e. eldavélarhellur, kæliskápur og uppvottaaðstaða með heitu vatni. Borð og stólar eru í salnum fyrir 80-90 manns, auk þess sem stór pallur er utan við húsið með áningarbekkjum. Einnig eru í húsinu tvær sturtur og salernisaðstaða
.

Tjaldsvæðið og þjónustuhúsið eru opin frá 1/5 til 30/9