|
SVEFNPOKAGISTING
Í hverju smáhýsi eru tvær tveggja manna kojur og vaskur með rennandi köldu vatni. Þar er hraðsuðuketill og borðbúnaður fyrir fjóra. Smáhýsin eru opin á tímabilinu 1/5 til 30/9. Allir gestir hafa frjálsan aðgang að þjónustuhúsi við hlið smáhýsanna. Þar er lágmarks aðstaða til matargerðar, þ.e. eldavélarhellur, kæliskápur og uppvottaaðstaða með heitu vatni. Borð og stólar eru í salnum fyrir 80-90 manns. Einnig eru þar tvær sturtur og salernisaðstaða. Í íbúðarhúsinu hefur lítil íbúð verið innréttuð með svefnplássi fyrir 6 manns í þremur herbergjum. Í hverju herbergi er koja með einu 120 cm rúmi og öðru 80 cm rúmi í efri koju. Í íbúðinni er baðherbergi með sturtu og eldhús með öllum helstu áhöldum til matargerðar auk lítilsháttar af borðbúnaði. Þessi
gistimöguleiki er opinn allan ársins hring. |