 |
ÞVOTTAVÉL
OG ÞURRKARI
Allir gestir hafa aðgang að þvottavél og þurrkara
í sundlaugarbyggingunni. Bæði tækin eru tengd
sjálfsala og auk þess er lítið rými
með snúrum þar sem einnig er hægt að
þurrka þvott.
|
 |
ULLARVÖRUR
Í afgreiðslu sundlaugarinnar er hægt að skoða
og versla ullarvörur og handverk sem unnið hefur verið
í nágrenninu. Þar ber hæst lopapeysur
úr íslenskri ull, en auk þess eru sokkar, vettlingar
og fleira í þeim dúr.
|
 |
UPPLÝSINGAR
Eins og víðast þar sem ferðamenn eru þjónustaðir
er starfsfólk okkar boðið og búið til
að veita upplýsingar um þjónustu, afþreyingu
og gistingu í nágrenninu og annað sem fólk
vill vita.
|

|
ÞJÓNUSTUHÚS
Árið 1999 var byggt þjónustuhús
milli tjaldsvæðisins og smáhýsanna sem byggð
voru þetta sama sumar. Allir gestir hafa frjálsan aðgang
að húsinu, en þar er lágmarks aðstaða
til matargerðar þ.e. gashellur og stórir pottar.
Borð og stólar eru í salnum fyrir 80-90 manns. Einnig
eru þar tvær sturtur og salernisaðstaða.
Þjónustuhúsið er opið frá 1/5
til 30/9 |