NÁGRENNI SVÍNAFELLS


Svínafell í Öræfum var mikið höfðingjasetur á Söguöld og voru Svínfellingar ein af valdaættum þess tíma. Flosi Þórðarson er þekktasti höfðingi sem þar hefur búið en hann kom mikið fyrir í Brennu-Njáls sögu. Búseta hefur verið í Svínafelli allt frá landnámsöld til dagsins í dag ef undan er skilið tímabil eftir gosið í Öræfajökli 1362.

Bærinn liggur við rætur Öræfajökuls sem er stærsta virka eldstöð á Íslandi. Umhverfi Svínafells einkennist af stórbreytileika og miklum andstæðum. Þar ber hæst Hvannadalshnúkur (2111 m) og frá bænum er útsýni yfir víðáttumikinn Skeiðarársand sem var vettvangur einna mestu náttúruhamfara á Íslandi í seinni tíð árið 1996. Kjarri vaxnar hlíðar Svínafellsfjalls mynda glæsilegan bakgrunn bæjarstæðisins og talið er að hvergi á Íslandi standi íbúðarhús jafn nærri jökulrönd og hér.

Aðeins 9 km. frá Svínafelli er Þjóðgarðurinn í Skaftafelli, ein helsta náttúruperla landsins með fjölbreytt gróðurfar og dýralíf auk fjölmargra gönguleiða við allra hæfi.

Í Freysnesi (2 km) er rekið eitt stærsta og glæsilegasta hótel sýslunnar, Hótel Skaftafell. Þar er einnig bensínstöð og söluskáli þar sem kaupa má helstu nauðsynjar.

Skoðunarferðir í Ingólfshöfða eru án nokkurs vafa einn af sérstakari afþreyingarmöguleikum á landinu, en ekið er frá Hofsnesi á sérútbúnum heyvagni og síðan gengið um höfðann.

Hér að ofan eru aðeins nefnd valin dæmi um þá fjölbreyttu þjónustu og möguleika sem ferðamönnum í nágrenni Svínafells stendur til boða. Upplýsingar um alla þjónunstuaðila í Öræfum má nálgast á vefnum www.oraefi.is. Yfirlit yfir ferðaþjónustu í Austur-Skaftafellssýslu má svo finna á vefnum www.rikivatnajokuls.is.